Space Exploration Technologies Corporation, betur þekkt sem SpaceX, er bandarískur
flugtækniframleiðandi
og geimferðafyrirtæki með höfuðstöðvar í Hawthorne í Kaliforníu.
Það var stofnað af kanadíska athafnamanninum Elon Musk árið 2002.
Tilgangur fyrirtækisins er að draga úr kostnaði við geimferðir og gera landnám á Mars mögulegt.
Helstu framleiðsluvörur SpaceX eru Falcon-flaugarnar og Dragon-geimförin sem hafa verið notuð til að
koma farmi á braut um jörðu.
Geimför
SpaceX er fyrsta einkafyrirtækið sem sent hefur vökvadrifna eldflaug á braut um jörðu (Falcon 1 árið
2008), fyrsta einkafyrirtækið
sem tekist hefur að senda geimfar á braut um jörðu og endurheimta það (Dragon árið 2010), fyrsta
einkafyrirtækið sem sent hefur
geimfar til Alþjóðlegu geimstöðvarinnar (Dragon árið 2012) og fyrsta fyritækið sem tekist hefur að lenda
og endurnýta eldflaug
sem send hefur verið út í geim.
SpaceX hefur flogið með farm til Alþjóðlegu geimstöðvarinnar samkvæmt
samningi við NASA.