Ferill
Zara Larsson er fædd og uppalin í Solna í Stokkhólmi og hefur verið í sviðsljósinu frá unga aldri. Hún vakti fyrst þjóðarathygli þegar hún vann sænsku hæfileikakeppnina Talang árið 2008, aðeins 10 ára gömul. Sigurinn markaði upphafið að löngum og árangursríkum ferli þar sem hún sýndi snemma að hún bjó yfir bæði óvenjulegum sönghæfileikum og sterku sviðsframkomu.
Árið 2012 skrifaði hún undir samning við TEN Music Group og gaf í kjölfarið út lagið Uncover, sem sló í gegn á Norðurlöndunum og varð eitt af hennar fyrstu stóru alþjóðlegu lögum. Árið 2015 festi hún sig svo rækilega í sessi á alþjóðavísu með laginu Lush Life, sem varð sumarsmellur víða um heim og er enn eitt af hennar þekktustu lögum.
Undanfarna mánuði hefur hún aftur verið á mikilli uppleið, meðal annars með nýjasta laginu sínu Midnight Sun. Hún var tilnefnd til Grammy verðlaun á þessu ári fyrir "Best Dance Pop Recording" fyrir lagið Midnight Sun. Nýleg endurvakning vinsælda hennar tengist þó sérstaklega laginu Symphony(með Clean Bandit) , sem fór „viral“ á TikTok mörgum árum eftir að það kom út. Sú bylgja kynnti hana fyrir nýrri kynslóð hlustenda og styrkti stöðu hennar á samfélagsmiðlum. Í kjölfarið hefur hún endurmarkaðssett sig með skýrari ímynd, auknu sjálfstrausti og sterkari tengingu við aðdáendur.