The BEATLES

hverjir eru Bítlarnir

The Beatles eða Bítlarnir er víða talin sem áhrifamesta hljómsveit í sögu tónlistar. Tónlist þeirra þróaðist úr einföldu rokki yfir í fjölbreyttari og tilraunakenndari hljóm. Kjarninn í hljómsveitinni voru John Lennon, Paul McCartney, George Harrison og Ringo Starr. Áður en Ringo gekk í sveitina höfðu þeir haft aðra trommuleikara, en árið 1962 varð hljómsveitin eins og flestir þekkja hana í dag. Þeir byrjuðu á því að spila í litlum klúbbum í Liverpool og Hamborg. Fljótlega urðu þeir mjög vinsælir í Bretlandi og árið 1964 slógu þeir í gegn í Bandaríkjunum. Með árunum varð tónlistin þeirra fjölbreyttari, þeir prufu alls kyns hljóma og nýjar upptökuaðferðir með hljóðfæri. Árið 1966 hættu þeir að halda tónleika og einbeittu sér bara að því að taka upp tónlist. Þeir höfðu gefið út margar vinsælar plötur, t.d. Sgt. Peppers lonely hearts club band, Abbey Road, Rubber soul og margar fleiri. Hljómsveitin hætti svo að spila saman árið 1970. Eftir að hljómsveitin hætti gáfu allir úr hljómsveitinni út tónlist hver í sínu lagi.

Meet the Beatles!

Album: meet the Beatles! (árið 1964)

I wanna hold your hand

I saw her standing there

All my loving

Byrjun Bítlana

Í nóvember 1956, stofnaði John Lennon sem þá var 16 ára og nokkrir skólafélagar hans hljómsveitina The Quarrymen. Þann 6. júlí 1957 kynntist hann 15 ára dreng, Paul McCartney, sem gekk fljótlega til liðs við sveitina sem rytma-gítarleikari. Ári síðar bauð Paul 15 ára vini sínum, George Harrison, að koma og horfa á sveitina spila. Eftir tónleikana óskaði George eftir að fá að ganga í hljómsveitina. John taldi hann þó í fyrstu vera of ungan, en eftir mánuð af þrautseigju fékk George annað tækifæri til að spila fyrir þá — og hlaut þá stöðu aðalgítarleikara. Í janúar 1959 höfðu flestir upprunalegir meðlimir The Quarrymen yfirgefið hópinn og Lennon hóf nám við listaháskóla í Liverpool. Vinur Lennons úr listaskólanum, Stuart Sutcliffe, sem nýverið hafði selt málverk og keypt sér bassagítar fyrir ágóðann, gekk til liðs við sveitina í janúar 1960. Hljómsveitin gekk undir ýmsum nöfnum næstu árin, t.d. Johnny and the Moondogs, The Silver Beetles og The Beetles þar sem þeir fengu innblásturinn frá hljómsvetin Buddy Holly, The Chrickets. Svo vorið 1960 voru þeir farnir að kalla sig Bítlana/ The Beatles. Sama ár fóru Bítlarnir til Hamborgar þar sem þeir spiluðu á ýmsum skemmtistöðum. Síðar lést Stuart Sutcliffe eftir heilablóðfall. Í Hamborg kynntust þeir trommuleikaranum Ringo Starr, sem þá spilaði með hljómsveitinni Rory Storm and the Hurricanes. Árið 1962 tók Ringo við sem trommuleikari Bítlanna og leysti þá Pete Best af hólmi.