TÖLVULEIKIR

1950 - 1960

Tölvuleikir sem voru búnir til á sjötta og sjöunda áratugnum voru hafðir til sýnis eða skemmtunar í einstaka tölvum stórfyrirtækja.

1970

Áhugi fólks var mikill á þessum leiktækjum og framsýnir menn sáu tækifæri til að hanna leikjatölvur sem hægt var að tengja við sjónvörp og þróuðu á sama tíma hina geysivinsælu tölvuspilakassa.

1980

Á 9. áratugnum mátti finna spilasali stútfulla af tölvuspilakössum í borgum og bæjum víðsvegar um heiminn. Á seinni hluta áratugarins heldur heimilistölvan (Personal Computer) innreið sína í stofur landsmanna.

1990

Tölvur verða að almenningseign, í þeim má finna ýmsa vinsæla tölvuleiki en það sem stendur upp úr eru sérhannaðar tölvur fyrir tölvuspil. Nintendo og Sony Playstation áttu hug og hjörtu ungmenna 10. áratugarins.

2000

Fjölspilunarleikir halda innreið sína á markaðinn. Internetið eflist og möguleikarnir á að margir þátttakendur geti spilað saman í einu tölvuspili verða að raunverleika.

2010

Fjölspilunarleikir eru lang vinsælasta form tölvuleikja. Stórir hópar áhangenda mynda samfélög utanum vinsælustu tölvuleikina. Spjaldtölvur og símtæki hafa mikil áhrif á tölvuleikjagerð.

Victory Royale