Framtíð


Framtíð CS:GO lofar afar góðu. Úr því að Valve er svona duglegt að halda í við leikin og uppfæra, þá held ég að leikurinn er ekkert að fara á næstunni, það eru nefnilega svo ótrúlega margir spilarar og það eru ennþá ótrúlega margir að byrja í leiknum, sérstaklega því hann er orðinn frír. Svo eru líka ótrúlega mörg mót haldin, nánast mánaðarlega eru mót hvaðan æðan í heiminum þar sem það eru gífurleg verðlaun alveg frá $500-500.000 USD en svo eru líka mótin sem Valve halda, eins og heimsmeistaramót, þá eru oftast mun hærri verðlaun, t.d. á Katowice mótinu á þessu ári þá voru verðlaunin 1.5 milljón USD

CS : GO